|
|
07.03.2007 23:31:12 / kollap
Vorið nálgast!
Búin að rekast á tvær flugur í dag!
Önnur var að flækjast fyrir mér í tiltektinni hérna á heimilinu og
svo sá ég eina hlussu þegar við fórum í göngutúr í dag! Þó að
flugur geti nú valdið leiðindum stundum tek ég þeim fagnandi!
Þetta þýðir bara eitt, VORIÐ ER AÐ KOMA! Mikið er ég fegin,
þetta er búinn að vera leiðinlegur vetur svoa veðurlega
séð!
Annars er bara allt að tryllast fyrir helgina þar
sem að við erum að fara heilar 9 skvísur með meiru upp í
sumarbústað til mín á föstudaginn. Eins og þið getið ýmindað
ykkur er verið að skipurlegga og plana alveg útí ystu æsar!
Þetta verður rosalegt!
Annars er ég bara hrikalega hress, anga af ajax
lykt eftir heljarinnar hreingerningu!!!!
Buona notte...
»
05.03.2007 00:10:55 / kollap
Góða kvöldið...
Eins og sést þá hef ég ekki litið hér inn í
langann tíma!
Af mér er allt gott að frétta! Nóg að gera
eins og venjulega, ég er enn í mínu námi sem að ég er að fíla í
botn! Annars er ég alltaf að bralla það sama, þjálfaí
Sporthúsinu, kenna uppí förðunarskóla, farða og skrifa fyrir blöðin
og svo um helgar sting ég af í sveitina mína og gerist
sveitalúði! I love it!
Kom einmitt heim núna áðan eftir notarlega helgi,
var reyndar dugleg að gera fínt í dag þar sem að ég á von á
einhverjum 8 eða 9 skvísum þangað næsta föstudag! Jesús hvað
það verður gaman!
Við féngum einmitt yndislega gesti í
gærkveldi í sveitina þar sem að hún Ingunn mín sem að vann með mér
í Sporthúsinu lét sjá sig ásamt sínum manni honum
Danna! Við borðuðum saman og áttum notalega
kvöldstund! Við Ingunn eyddum svo miklum tíma saman
þegar við unnum saman í Sporthúsinu á sínum tíma þannig að ég er
búin að sakna hennar sárt upp á síðkastið. Það var algjör
vítamínsprauta að fá þig í heimsókn kæra vinkona!
Jæja, ég varð að henda inn nokkrum línum þar sem
að ég var farin að fá kvartanir! Það er aldrei að vita nema
að ég standi mig betur á næstunni!
Bendi ykkur líka á annað blogg sem að ég er með
ásamt minni yndislegu vinkonu Önnu Rún, þar erum við að spjalla um
vinnuna okkar og margt fl skemmtilegt!
Endilega kíkið við www.lifstill.blog.is
Buona notte, Kolla.
»
21.07.2006 15:49:25 / kollap
Ég er búin að vera að vafra um á netinu og skoða fjöldann allan
af bloggsíðum í dag og komst að því að ég er ekki ein um að standa
mig illa í sumarfríinu.
Þetta blog mitt átti nú líka bara að vera afþreying á meðan ég
dvaldist í Indlandi en svo er þetta búið að teygjast eitthvað
hjá mér.
Verð nú að viðurkenna að ég er fegin að vera stödd á Íslandi
núna. Hefði ekki viljað vera í Mubay þegar árásirnar skullu á
. Fólkinu okkar þarna hjá eskimo var víst svolítið brugðið en
allir sluppu ómeiddir enda fer maður bara ekki í lestarnar þarna
úti. Það er svo mikill fólskfjöldi þarna að fólk bókstaflega
hangir út úr lestunum. Frekar óhugnalegt!
Ég er nýbúin að fá smá fréttir af vinnunni minni þarna
úti. Tískuþátturinn minn í Cosmopolitan kom víst
mjög vel út. Ég hef enn ekki séð blaðið en er að vonast til
að fá það sent fljótlega.
Annarst erum við fjölskyldan í sumarfríi og erum búin
að hafa það mjög gott. Komum heim í gær eftir vikudvöl
á Laugum í Reykjadal. Alltaf jafn yndislegt að vera
þar og hann Siggi Viðar er búin að vera í algjöru hamingjukasti í
sveitinni. Við fengum frábært veður sem var mjög kærkomið
eftir þetta ömurlega sumar í Reykjavík. Komum svo með blíðuna
með okkur í gær. Þvílíkt sem að það lifnar yfir fólkinu þegar
sólin lætur sjá sig.
Við mæðginin fórum í þvílíku kraftgönguna í dalnum
þegar við komum heim. Drifum okkur svo í grasagarðinn og fengum
okkur hollt og gott að borða.
Njótið góða veðursins og hafið það gott!
K
»
28.06.2006 11:37:17 / kollap
Fann þessar fallegu hugleiðingar um lífið á netinu!
Lífið er tækifæri, gríptu það.
Lífið er fegurð, dáðu hana.
Lífið er gjöf, njóttu hennar
Lífið er draumur, láttu hann rætast.
Lífið er áskorun, taktu henni.
Lífið er skylda, gerðu hana.
Lífið er leikur, leiktu hann.
Lífið er dýrmætt, gættu þess.
Lífið er auðlegð, varðveittu hana.
Lífið er kærleikur, gefðu þig honum á vald.
Lífið er loforð, láttu það rætast.
Lífið er sorg, sigraðu hana.
Lífið er söngur, syngdu hann.
Hafið það gott í dag.
Kveðja Kolla
»
26.06.2006 09:19:27 / kollap
Við fjölskyldan erum búin að eiga yndislega helgi í sveitinni,
en ekki hvar!
Við Christina lögðum af stað snemma á
föstudaginn með viðkomu í bakaríinu og búðinni í
Hveragerði og keyptum okkur allt sem hugann girndist! Við
fengum yndislegt veður okkur til mikillar ánægju og láum eins
og skötur úti í sólinni og grilluðum okkur eins og íslendingum
einum er lagið! Við fundum varla fyrir strákunum okkar enda
nóg að dunda sér við í sveitinni.
Þröstur og Oddgeir komu svo um kvöldmatarleytið með kræsingar á
grillið fyrir prinsessurnar. Við tókum svo eitt Catan sem ég
auðvitað rúllaði upp!
Á laugardaginn þurftum við reyndar að skreppa í bæinn til
að fara í útskrift til Þorkels frænda. Þar skildum við Sigga
Viðar eftir hjá mömmu og pabba og við héldum svo partýstandinu
áfram. Við fórum í eitt æðislegasta brúðkaup sem ég hef farið í.
Þetta var hjá Völundi vini hans Þrastar, kokki með meiru og
Þóru sem margir kannast við úr stundinni okkar! Þið getið
rétt ýmindað ykkur fjörið! Ég hef í fyrsta lagi aldrei skemmt
mér svona vel í kirkjunni sjálfri þar sem presturinn var hreinlega
með uppistand, það var mikið klappað og mikið fjör! Veislan
var frábær og við hittum mikið að fólki sem við þekkjum.
Eftir allt fjörið ákváðum við sveitalingarnir svo bara að bruna í
sveitina aftur og fengum meira að segja að lúlla út þar sem
prinsinn gisti hjá ömmu og afa. Um hádegi komu þau svo í sveitina
með orminn okkar og eyddu deginum hjá okkur.
Þröstur er búinn að umturna lóðinni fyrir austan þar sem hann er
búinn að vera með gröfu í láni síðustu daga. Hann var svona
frekar krúttlegur til að byrja með, vissi varla hvað snéri fram né
aftur. Þegar hann hinsvegar náði tökum á skrímslinu varð hann
óstöðvandi og er að verða búinn að gera þvílíkt fínt hjá okkur!
Í gærkvöldi komu svo Alli bróðir og Heiðrún í heimsókn og
grilluðu með okkur!
Við fjölskyldan komum svo bara heim í morgun endurnærð eftir
sveitina. Nú eru tvær vinnuvikur eftir hjá okkur og þá
erum við komin í sumarfrí!!!!
Ég er hinsvegar í fríi í dag en það býður mín bara þvottur og
tiltekt! Aldrei að vita nema maður skelli sér í Sporthúsið og
hreyfi sig eftir helgina, lofa þó engu.....
Hafið það gott!
Kolla sveitapía!
»
11.06.2006 12:05:24 / kollap
Góðan daginn öll sömul.
Ég rakst á þessar fróðlegu reglur sem ég held að sé nauðsynlegt
fyrir allar konur að vita af næstu daga..
HM reglur fyrir konur !!
TAKIÐ eftir allar konur! Það er mikilvægt fyrir ykkur að lesa
áfram, það gæti bjargað hjónabandinu eða sambandi. Karlmenn í
heiminum haft sett húsreglur fyrir lokakeppni HM í Þýskalandi og
það er eins gott að þið farið eftir þeim.
REGLURNAR:
1. Frá 9. júní til 9. júlí 2006 skaltu fylgjast vel með fréttum hér
á hmbolti.net svo þú vitir hvað er að gerast á lokakeppninni í
Þýskalandi. Þá getum við talað lítilega saman á meðan á
lokakeppninni stendur þar sem ég mun ekki ræða um neitt annað en
FÓTBOLTA.
2. Á meðan á lokakeppni HM stendur er sjónvarpið mitt – alltaf og
án allra undantekninga.
3. Það er allt í lagi ef þú þarft að komast framhjá sjónlínu minni
að sjónvarpinu svo lengi sem þú skríður eftir gólfinu og truflar
mig ekki. Ef þér skildi detta í hug að standa nakin fyrir framan
sjónvarpið farðu þá strax aftur í fötin þar sem ég mun ekki hafa
tíma til að fara með þig til læknis fáir þú kvef.
4. Á meðan á leik stendur verð ég heyrnalaus, mállaus og blindur
gagnvart þér – nema ef til þess kemur að ég þurfi nýjan bjór eða
eitthvað að borða.
5. Það er góð hugmynd fyrir þig að hafa alltaf alla vega tvær
kippur af bjór vel kældar inni í ísskáp og nóg af snakki. Ef þú
hagar þér vel fyrir framan vini mína máttu horfa á sjónvarpið frá
klukkan 12 á miðnætti til 6 um morguninn ef það eru ekki neinar
endursýningar á þeim tíma.
6. Ef þú sérð að ég er reiður eða pirraður þegar liðið mitt er að
tapa viltu þá EKKI segja “þú jafnar þig – þetta er bara leikur” eða
“ekki hafa áhyggur – þeir vinna kannski næst.” Ef þú segir þetta
verð ég bara reiðari eða pirraðari. Mundu ávallt að þú munt aldrei
vita meira um fótbolta en ég og svona setningar verða bara til þess
að við skiljum fyrr.
7. Þú mátt horfa á EINN leik með mér og þú mátt tala við mig í
hálfleik, en bara þegar auglýsingarnar eru og bara ef staðan er
góð. Taktu líka eftir að ég sagði EINN leik, ekki reyna að nota
lokakeppni HM sem einhverja hörmulega tilraun til að “eyða tíma
saman”.
8. Endursýningar á mörkum eru mjög mikilvægar. Mér er alveg sama
hvort ég hafi séð markið áður eða ekki, ég vil sjá það oft og
mörgum sinnum í viðbót.
9. Segðu vinkonum þínum að eignast ekki börn á þessum tíma, ekki
halda nein barnaafmæli eða aðrar fáránlegar veislur vegna þess
að:
a) ég mun ekki mæta
b) ég mun ekki mæta og
c) ég mun ekki mæta
10. En athugaðu, ef vinur minn bíður mér í heimsókn til að horfa á
leik er ég rokinn.
11. Markaþættirnir í lok dagsins eru alveg jafn mikilvægir og
leikirnir sjálfir. Ekki detta í hug að láta út úr þér setningu eins
og “en þú hefur séð þetta áður” eða “af hverju skiptir þú ekki um
stöð?” Lestu aftur reglu númer 2.
12. Og að lokum, sparaðu þér setningu eins og “Guðs sé lof af
lokakeppni HM er bara á 4 ára fresti”. Ég heyri ekki þessa setningu
enda tekur Meistaradeildin, Enski boltinn, Ítalski boltinn, Spænski
boltinn og fleira við.
Takk fyrir að virða reglurnar.
Karlmenn um heim allan
..
»
07.06.2006 17:43:03 / kollap
Sæl verið þið!
Ég sit hérna í sveitinni í rólegheitum, mennirnir mínir eru
báðir að leggja sig þannig að ég ákvað að skrifa nokkrar
línur!
Ég var að enda við að lesa fréttir af honum Þórir vini okkar í
Bandaríkjunum. Þórir greindist með heilaæxli nú fyrir stuttu
og er að bíða eftir annari aðgerðinni sinni á örfáum dögum.
Hann er búinn að standa sig eins og algjör hetja og mun örugglega
gera áfram.
Þessa frábæru sögu sendi ein vinkona þeirra þeim
og ég mátti til með að deila henni líka með ykkur
enda frábær boðskapur í henni.
Njótið vel...
Froskasagan
Það var einu sinni hópur froskaunga sem ætluðu að koma á fót
kapphlaupi. Markmiðið var að komast upp á topp á háum turni.
Margmenni hafði safnast saman til að fylgjast með hlaupinu og
hvetja þátttakendur. Síðan var hlaupið ræst
.
Í sannleika sagt:
Enginn áhorfendanna trúði því í raun að froskaungarnir gætu klifrað
upp á topp turnsins. Það eina sem heyrðist voru setningar eins og:
,,Oh svo krefjandi!!! Þeir munu áreiðanlega ALDREI komast alla
leið” eða ,,ekki séns á að þetta takist, turninn er allt of
hár!”
Froskaungarnir hættu, hver á fætur öðrum….- nema einn….sem fljótt
kleif hærra. Fólksmergðin hélt áfram að hrópa ,,þetta er allt of
krefjandi!!! það mun enginn geta þetta!!”
Fleiri og fleiri froskaungar urðu þreyttir og gáfust upp…Bara einn
hélt áfram hærra og hærra… Hann vildi hreint og beint ekki gefast
upp!! Fyrir rest höfðu allir hinir gefist upp á að klifra – fyrir
utan þessi eini froskur, sem eftir mikið erfiði náði toppnum!
Nú vildu allir hinir þátttakendurnir auðvitað fá að vita hvernig
hann fór einginlega að því að vinna þvílíkt afrek – og ná í
MARK!!!! Þá kom í ljós að sigurvegarinn var heyrnarlaus!!!
Og lærdómurinn af þessari sögu er:
Hlustaðu aldrei á fólk sem er alltaf neikvætt og bölsýnt…..vegna
þess að það tekur frá þér ÞÍNA fallegustu drauma og óskir, sem þú
berð í hjarta þínu! Hugsaðu allaf um kraft orðanna af því að allt
sem þú heyrir og lest hefur áhrif á gjörðir þínar!
Þess vegna: vertu ALLTAF JÁKVÆÐUR.
Og fyrst og fremst:
Vertu hreint og beint HEYRNARLAUS þegar einhver segir við þig að þú
getir ekki látið ÞÍNA drauma rætast!!
Hugsaðu alltaf: Ég skal geta það!!!!!!!!
Kveðja Kolla
»
30.05.2006 22:51:03 / kollap
Það er óhætt að segja að það sé gott að vera komin heim!
Það var mikill léttir að setjast í flugleiðarvélina í London
eftir Indlansdvölin, ferðalagið og meiriháttar púl á flugvellinum í
London þar sem ég þurftir að fara með allar töskurnar mínar á milli
terminala. Ég var frekar skrautleg þarna á vellinum með þrjár
töskur að reyna vera einhver skvísa. Ég svaf ekki dúr á leiðinni
frá London til Íslands. Ég var orðin of spennt að komast heim! Ég
lenti uppúr miðnætti þann 15. maí og þið getið ýmindað ykkur að ég
var ekkert að slóra í fríhöfninni. Það var yndisleg tilfinning að
komast svo loksins í fangið á honum Þresti mínum sem beið mín á
flugvellinum. Við brunuðum svo beint í smá innlit til mömmu, pabba
og Alla. Varð að smella á þau kossi og gefa þeim smá knús enda voru
þau ótrúlega dugleg með Sigga Viðar á meðan ég var úti. Við fórum
svo heim og mig langaði alvarlega að vekja litla prinsinn minn hann
Sigga Viðar sem mér fannst hafa stækkað heilan helling. Ég bara
stóð yfir rúminu hans og starði á hann. Það var svo skrítið að vera
komin heim. Ég fékk freyðibað, ristað brauð og graflax í kvöldkaffi
og svo var lítið annað að gera en að hvíla sig aðeins enda búin að
ferðast næstum því sólahring og tímamismunurinn tæpir 6 tímar í
þokkabót.
Kl 8:00 um morguninn vakti Þröstur svo Sigga Viðar og leyfði
honum svona aðeins að vakna áður en ég birtist svo frammi. Honum
brá nú pínulítið við að sjá mig, varð svo feiminn og horfði bara á
tásurnar sínar. Hann gekk um gólf í tvo þrjá hringi og svo tók hann
á sprettinn í fangið á mér, kleip í hálsinn og mér og knúsaði mig í
klessu. Þegar þessari stund lauk hélt hann algjöra sýningu fyrir
mig. Sýndi mér hvað hann var orðinn stór og duglegur!
Ég er búin að hafa það alveg yndislegt síðan ég kom heim. Við
erum búin að vera mikið í sveitinni. Það kom öll tengafjölskyldan
mín í heimsókn föstudagskvöldið 19. maí og gistu hjá okkur. Það var
mikið fjör. Mér var svo haldin óvænt afmælisveisla laugardaginn 20
maí í sveitinni. Þröstur og Christina voru búin að púkast eitthvað
saman og um kaffileytið mætti svo bara nánast allur saumaklúbburinn
ásamt mökum og börnum. Þetta var alveg frábært og mig grunaði ekki
neitt enda voru allir búnir að ljúga mig fulla. Við byrjuðum á
kaffi og lukum við afmælisterturnar sem að Þröstur hafði keypt!
Enduðum svo á að grilla geggjaðan mat, sötra á rauðvíni og horfa á
eurovision. Þetta var sem sagt yndisleg helgi í alla staði.
Við fórum svo aftur í sveitina á miðvikudagskvöldið í síðustu
viku og vorum fram á sunnudagskvöld með reyndar smá viðkomu í bænum
á föstudaginn þar sem hún Heiðrún okkar var að útskrifast frá MK.
Christina, Oddgeir og Tristan voru hjá okkur eina nótt. Sigga
Viðari finnst Tristan æðislegur og gerir allt eins og hann. Við
fórum meðal annars í dýragarðinn Slakka. Það var alveg frábært og
prakkararnir nutu sín vel. Pabbi leit við á fimmtudaginn, mamma
leit líka við með allan saumaklúbbinn sinn þar sem þær voru að koma
úr sumarbústaðarferð. Arnar kom og vann aðeins hjá okkur og lúllaði
eina nótt, Gummi, Berglind og Ingunn voru í mat hjá okkur á
laugardagskvöldið og við spiluðum Catan fram eftir öllum á meðan
við fylgdumst með kosningarsjónvarpinu með öðru auganu. Það er sem
sagt búið að vera mikið um að vera í sveitinni og mikið um góðan
félagsskap.
Ég er búin að vera að koma mér af stað í vinnunni aftur, hafa
samband við kúnnana mína og taka á móti nokkrum nýjum. Ég er líka
búin að vera mikið heima hjá mér og búin að njóta þess í botn. Ég
er líka búin að vera svolítið dugleg að borða enda fannst mér ég
eiga það inni. Við höfum það svo gott hérna að það er alveg
ótrúlegt! Það er ekki hægt að neita því eftir þessa reynslu þarna
úti er ég mun meðvitaðri um lífið og þakklátari fyrir það sem ég
hef! Ég held að við ættum öll að staldra við oftar og njóta líðandi
stundar. Við erum rosalega heppin.
Heilsan er orðin góð eftir matareitrunina þó svo að þrekið sé
ekki alveg orðið 100%. Ég er að byrja í ræktinni aftur, þetta
verður enga stund að koma. Við Siggi Viðar eigum líka eftir að vera
dugleg að labba í dalnum í sumar og fara í laugarnar.
Jæja, nú er sumarið framundan og mikið skemmtilegt á döfinni.
Siggi Viðar byrjar á leikskóla þann 12. júní. Við hlökkum mikið til
þó svo að við eigum eftir að sakna Bubbu dagmömmu.
Ég býð góða nótt og heyrumst síðar.....
Kolla.
»
22.05.2006 10:30:48 / kollap
Skrifað 14. maí.
Jæja þá er ég að fara lúlla mér og það síðustu nóttina hér í
Indlandi í þetta skipti!
Þetta er búið að vera í alla staði frábær upplifun og ég mun
alla tíð vera stolt af sjálfri mér fyrir að hafa látið verða af
þessu! Það má alls ekki gleyma því að ég hefði aldrei getað þettað
ef að ég ætti ekki frábæra að!
Verð að reyna að lúlla smá, klukkan er orðin alltof margt!
Skrifað mánudagsmorgun 15. maí. Kl 11:00
Ég sit á flugvellinum í rólegheitum, komin í gegnum
útlendingaeftirlitið. Þurfti ekki að greiða fyrir yfirvigtina mína
svo að ég sit hér glöð í bragði! Það eru tveir tímar í flug og ég
spennt að komast heim. Ég hef sem sagt nægar tíma til að skrifa
síðustu línurnar af ferðasögunni.
Síðastliðnu daga hef ég eingöngu verið að spóka mig um götur
Indlans, borðað yndislegan mat, sólað mig og eytt tíma með Gunnu. Í
gærkvöldi bauð Inhaksi okkur öllum i mat heim til sín. Hún eldaði
ekta indverskan mat sem var án efa sá besti sem ég hef fengið í
ferðinni. Við áttum notalegt kvöld með fjölskyldu hennar. Synir
hennar voru með frábæra sýningu fyrir okkur. Sá eldri spilaði á
gítar og sá yngri hermdi eftir Mr. Bean og rappaði fyrir okkur!
Þeir voru æðislegir!
Þó svo að það verði yndislegt að komast heim á ég örugglega
eftir að sakna Indlans á vissan hátt. Það verður þó gott að losna
úr öllu áreitinu sem er hér í borginni. Umferðinni, látunum,
menguninni, og að vera ekki með betlara utan í sér alla daga. Ekki
misskilja mig. Við erum búnar að eiga nokkrar skrautlegar reynslur
hvað það varðar. Við Gunna lentum td. í því að það var lítill
strákur að selja dagblöð út á götu. Við vorum inn í bíl og Gunna
ákvað að stryrkja guttann og keypti af honum blað og borgaði aðeins
rúmlega, við fundum til með honum. Það var ekki glæsilegur útgangur
á honum greyinu. Litli karlinn var heldur ánægður með okkur, tók
peninginn, horfði svo lengi á okkur og brosti svo út í annað og
stakk af án þess að láta okkur fá blaðið! Við höfum líka lent í því
að okkur var selt örugglega tveggja ára Voge blað af einum svona
gutta. Þetta var í plastinu og leit vel út! Það eru allir að reyna
að svíkja þig hérna! Nokkrir leigubílstjórar reyndu líka að fara
illa með okkur! Við vorum bara farnar að rata fyrir rest þannig að
það þýddi lítið að plata okkur! Við vorum orðnar heldur hvassar
síðustu dagana.
Það eru svo auðvitað allaf einhverjir sem hafa orðið illa úti.
Hér er mikið af fólki sem vantar á hendur eða fætur og sagan segir
að það sé mafía á bak við það. Okkur var sagt að gefa þessu fólki
frekar eitthvað að borða eða drekka því að peningurinn væri allur
tekinn af þeim. Án efa það versta sem ég sá var maður sem var
ekkert nema búkurinn! Það vantaði allt fyrir neðan mitt og það
vantaði líka á hann hendurnar. Hann lá bara þarna á götunni og gat
ekkert gert! Mér finnst auðvitað líka búið að vera hryllilega
erftitt að horfa upp á allt heimilislausa fólkið og þá sérstaklega
börnin.
Ég mun lifa lengi á þessari ferð, þetta er búið að vera eitt
ævintýri. Dýrmæt reynsla í bankann. Nú tekur aftur við lífið á
Íslandi. Ég get ekki beðið eftir að vera húsmóðir, mamma og
eiginkona í sumar. Ég byrja líka að kenna í förðunarskóla Rifka í
júní ásamt því að vera að þjálfa smá. Annars ætlum við fjölskyldan
að reyna að vera sem allra mest í sveitinni saman.
Læt í mér heyra þegar ég er lent á Íslandi....
Kveðja Kolla
»
14.05.2006 07:31:19 / kollap
Mig langaði bara að bjóða ykkur góðan daginn og minna á að
þetta er síðasti dagurinn minn á Indlandi! Á morgun á ég svo
langt ferðalag fyrir höndum.
.Það verður ljúft að komast heim!
Ég ætla núna aðeins að spóka mig með henni Gunni minni .
Læt heyra í mér síðar í dag!
Eigið góðan dag!
»
12.05.2006 18:57:13 / kollap
Nú styttist óðum í að ég dragi andann í
ferska loftinu í Keflavík.
Tilfinningin er samt svolítið skrítin yfir því að þetta sé að
verða búið. Ég tók þá ákvörðun að njóta síðustu daganna alveg í
botn og það gengur bara nokkuð vel.
Ég átti yndislegan dag í dag, við Gunna fórum aftur í sólina á
Sun and sand og slökuðum á þar til að verða 18:00. Þaðan skrapp ég
í æðislega bóka og geisladiskabúð og dundaði mér þar í dágóða
stund. Ég valdi mér nokkra geisladiska með indverskri tónlist. Það
er auðvitað bara skylda að fara heim með smá brot af Indversku
menningunni. Ég hefði nú helst viljað taka með nokkrar stórar og
fallegar ljósmyndabækur af Indlandi en það er ekki hægt. Ég er með
of mikinn farangur nú þegar!
Þegar ég kom heim um kl 20:00 var Imam ennþá að vinna og við
vorum bæði orðin svöng og svo er Imam auðvitað alltaf til í að gera
eitthvað skemmtilegt! Hann tók mig sem sagt upp á sína arma og við
fórum á vit ævintýranna! Hann byrjaði á að fara með mig í strætó
bara til þess að leyfa mér að prófa að fara í strætó í Indlandi.
Þeir eru svona vægast sagt frekar ógeðslegir og ég get ekki líst
svipnum á fólkinu þegar ég stökk inn í kjól og hælaskóm! Það var nú
stutt stopp í strætó og úr honum fórum við með riksa restina af
leiðinni. Við enduðum á þessum æðislega indverska stað sem að
vinkona hans á og rekur. Við fengum borð og þar sem Imam þekkti
auðvitað alla á staðnum var ekkert lítið dekrað við okkur. Ég fékk
ekta indverskan mat á stórum stál diskum, borðaði með puttunum eins
og allir hinir og fannst hann æði. Það var auðvitað beðið um að
hafa matinn eins lítið sterkann og mögulegt var fyrir Íslendinginn.
Verð samt að viðurkenna að hann tók aðeins í! Það var lifandi
tónlist á staðnum. Ég gat ekki beðið um meira! Frábært kvöld í alla
staði!
Ég átti ekki eins notalegt kvöld í gærkvöldi þegar ég ákvað að
senda slatta af farangrinum mínum heim með Fedex þar sem ég er
komin með aðeins umfram það sem ég má ferðast með og ég ætla ekki
að lenda í neinum vandræðum á flugvellinum, það er alveg á hreinu.
Ég var búin að fara fyrr um daginn á tvo staði til að fá verð og
upplýsingar svo að það yrði nú enginn misskilningur. Ég var mætt
þarna eitthvað að ganga 18.00 Þjónustan var hræðileg og þetta gekk
allt mjög hægt fyrir sig. Þegar kl var orðin 20:00 var þetta að
hafast hjá okkur. Ég var búin að pakka fötunum mínum í kassa,
skrifa niður heimilisfangið mitt og fá hann til að skilja að
Icelande væri ekki USA. Hann var kominn með visa kortið mitt í
hendurnar og ég ætlaði bara varla að trúa því að þetta væri að
takast þegar hann ákvað að hringja eitt símtal því að hann var
eitthvað óöruggur með þetta karlinn. Jú jú eftir símtalið sagði
hann mér það að ég mætti ekki senda persónulega muni eins og fötin
mín! Ég hélt að ég væri lent í falinni myndavél! Ég vissi ekki
hvort að ég ætti að hlægja eða gráta af þessari vitleysu! Það fauk
svo rosalega í mig að ég hótaði manngreyinu öllu illu, reif fötin
mín upp úr kassanum og rauk út aðeins rúmlega tveimur tímum
seinna!
Ef ég verð ekki orðin risalega þolinmóð þegar ég kem heim þá
veit ég ekki hvað! Það er óhætt að segja að þessi reynsla að hafa
búið í Indlandi hafi reynt örlítið á taugarnar. Við erum orðin allt
of góðu vön á Íslandi.
Nú er vonandi skemmtileg helgi frammundan. Mér heyrist allavega
vera eitthvað plan fyrir annað kvöld með Inhaksi og Imam. Í
hádeginu á mánudaginn legg ég svo af stað heim, þá er kl eitthvað
um 7:00 hjá ykkur og svo lendi ég að nálgast miðnætti. Þetta verður
sem sagt langur dagur en mikið verður yndislegt að komast heim og
hitta alla. Ég er farin að sakna strákanna minni aðeins of
mikið!
Góða nótt og góða helgi.
»
11.05.2006 12:42:42 / kollap
Hæ hó!
Við Gunna erum búnar að eiga frekar notalegan dag eftir smá
pirring hérna í vinnunni í morgun. Það hafa verið smá
samskiptaörðuleikar á milli okkar og bókarans okkar hérna hennar
Niki. Niki er ung og óreynd í bransanum og á það til að láta okkur
vita um casting og verkefni allt allt of seint eða segja okkur að
við séum komnar með verkefni sem er ekki búið að bóka. Í morgun
sendi hún mig sem sagt í casting sem að ég var búin að fara í áður
og í þokkabót verður auglýsingin ekki tekin upp fyrr en 22. mai! Þá
verð ég að sjálfsögðu stödd heima á
Íslandi.
Ég er búin að vera ótrúlega þolinmóð við hana hingað til en í
morgun fauk aðeins í mig. Líka þar sem þetta eru síðustu dagarnir
mínir hérna og ég vil bara fá að njóta þess að vera hérna, ekki
eyða tímanum í einhverja vitleysu!
Gunna greyið var líka alveg að springa þannig að við ákváðum að
fara á Mariot hótelið sem er eitt það flottast hérna í borginni og
fórum í hádegishlaðborðið sem er ekki lítið glæsilegt! Þarna sátum
við á beit í tvo tíma og nutum lífsins. Við borðuðum svo illilega
yfir okkur loksins þegar við komumst í almennilegan og öruggan mat
að þið trúið því ekki!
Eftir þennan dýrindismat og alla eftirréttina ákváðum við að
toppa daginn og fórum á annað hótel sem heitir Sun and sand leigðum
okkur bekki og sóluðum okkur í tvo tíma. Það er auðvitað mjög heitt
núna en það bjargaði því alveg að þetta var við ströndina og það
kom góður vindur frá sjónum.
Við áttum frekar rólegan dag í gær en kíktum svo á markað í
gærkvöldi og borðuðum svo á sama tælenska staðnum og við borðuðum á
í fyrradag. Nú tek ég enga sénsa með matinn.
Markaðurinn var sama martröðin og síðast og ég get svarið það
stundum stóð manni bara ekki á sama. Áreitið í þessu fólki er
eitthvað sem ég hef aldrei kynnst áður! Við Gunna vorum svo
sannarlega komnar langt frá okkar rétta eðli, farnar að öskra og
hreita framan í þetta fólk. Við gátum allavega hlegið mikið af
þessu þegar við vorum komnar heim!
Núna ætla ég að fara að byrja að pakka svona í rólegheitum og
svo kannski kíkjum við í bæinn í kvöld...
Síðar...
»
09.05.2006 20:00:49 / kollap
Elsku vinir og vandamenn, ástarþakkir fyrir
allar kveðjurnar,smsin og e-mailin í dag!
Það er ykkur að þakka að mér leið virkilega eins og ætti afmæli
í dag!
Það verður að viðurkennast að það var skrítin tilfinnig að vakna
hérna á Indlandi í morgun og vera orðin 26 ára!
Hann Þröstur minn hringdi bæði í mig kl tólf á miðnætti á
Indlandi og tólf á miðnætti á Íslandi og óskaði mér til hamingju
með afmælið á báðum stöðum! Þú ert svo frábær!
Ég ákvað nú svona þar sem ég hef ekki farið úr rúminu síðustu
tvo daga að skella mér í smá bíltúr með henni Gunnu minni og við
skelltum okkur á skemmtilegan Tælenskum stað í hádeginu hér í
Bandra og fengum okkur eitthvað létt góðgæti! Við kíktum svo í eina
búð sem selur allar þær snyrtivörur sem þú getur ýmindað þér,
grömsuðum þar smá stund og fórum svo heim aftur. Ég lagði mig í
þrjár klst eins og ungabarn eftir þetta. Það var frekar
notalegt!
Inhaksi vildi ólm halda upp á afmælið fyrir stelpuna og bauð
okkur Gunnu á þennan líka yndislega stað á ströndinn sem heitir Vie
Lounge & Deck.
Við vorum komin um kl átta og byrjuðum á að sitja undir berum
himni á meðan við fengum grillaðan fisk í forrét, brauð og pestó og
fullt af gotteríi! Þegar við vorum búin að sitja dágóða stund úti
yfir æðislegu útsýni, góðum mat og skemmtilegu sögunum hennar
Inhaksi um Indverska menningu færðum við okkur inn og pöntuðum
aðalréttinn. Kokkurinn kom fram og ákvað að gera eitthvað spes
fyrir alla í tilefni dagsin. Hann bjó til æðislegt kjúklingapasta
fyrir mig, þau hin fóru í kjötið! Það voru allir í skýjunum með
matinn og þjónustan var frábær. Við fengum líka frábærar sögur af
helginni frá Imam því að yngsi bróðir hans var að gifta sig og það
jafnast víst fátt á við Indversk brúðkaup! Mikið fjölkyldudrama,
500 gestir og mikið borðað og drukkið!
Inhaksi gaf mér Indverska bíómynd í afmælisgjöf sem heitir Bang
De Basanti. Þetta er stórmynd hérna í Indlandi og er einmitt með
öllum leikurunum í sem við Gunna hittum á föstudagskvöldið. Ég held
Indverkst bíókvöld þegar ég kem heim fyrir ykkur sem hafið áhuga og
elda ísl/indverskan mat með! Hljómar það ekki vel?
Þegar ég hélt að þessu væri að ljúka hjá okkur kom svo
súkkulaðikakan svífandi með kerti og þau sungu afmælissönginn fyrir
mig og alles. Sögðu svo á góðri íslensku, verði þér að góðu!! Þau
eru alveg einstök!
Það er óhætt að segja að það hafi ræst heldur betur úr deginum
hjá mér.
Takk fyrir allt, góða nótt..
Kolla
»
08.05.2006 08:25:28 / kollap
Góðan daginn öll sömul.
Nú er ég að komast til meðvitundar aftur eftir gærdaginn, fékk
lækni heim í gærmorgun. Þufti að fá sýklalyf í sprautu og var orðin
uppþornuð í þokkabót. Ekki alveg nógu gott. Fékk voða indælan
lækni, ekta indverji með túrban á höfðinu! Voða dúlla!
Planið fyrir þessa viku er sem sagt að jafna sig, taka smá frí
og undirbúa heimferðina. Ég er farin að hlakka mikið til að komast
heim eftir þessi ósköp. Mig er farið að dreyma um íslenska matinn,
vatnið og ferska loftið!
Ég get þó ekki sagt að þetta sé ekki búið að vera þess virði.
Það sem ég er búin að sjá og upplifa síðustu þrjár vikurnar er
eitthvað sem er búið að hafa mikil áhrif á mig. Það er búið breyta
hugsunarhætti mínum og þroska mig mikið.
Hver einasti dagur hér í Indlandi hefur verið verkefni að takast
á við. Samskipti við fólk allstaðar að úr heiminum. Vinna, borða og
upplifa menninguna. Ég er búin að njóta þess í botn að vera hérna
og ef þið fáið einhverntíman tækifæri á að fara til þriðja heims
lands þá mæli ég svo sannarlega með því.
Það hefur ekki sakaði hvað ég er búin að vera heppin með vinnu.
Ég er búin að landa mjög stórum verkefnum miðað við hvað ég er búin
að staldra stutt við hérna. Það tekur yfirleytt lengri tíma að fá
kynninguna hérna og komast inn í bransann.
Það er ótrúlega skemmtilegur og blandaður hópur að vinna hérna á
skrifstofunni hjá eskimo. Í fyrsta lagi er það hún Inhaksi sem er
41 árs fjölskyldukona. Inhaksi er mamman í húsinu. Hún stjórnar
öllu harðri hendi en á móti kemur að hún er alltaf til staðar ef
eitthvað kemur upp á og það er alltaf hæg að tala við hana. Það var
einmitt hún sem kom með fjölskyldu læknirinn sinn hérna í
gærmorgun. Næst er það hann Imam. Ég gæti skrifað lengi um Imam.
Hann er einn skrautlegasti karakter sem ég hef kynnst! Hann er 42
ára, samkynhneigður og ofvirkur en alveg frábær. Hann er búinn að
vera í 26 ár í bransanum enda farinn að líta svolítið stórt á sig!
Hann er svona stuðboltinn í hópnum og ef þér leiðist þá er alveg á
hreinu að hann bjargar því! Svona svo að þið áttið ykkur á því
hvernig þetta virkar hérna í Indlandi þá á Imam son sem er 8 ára
sem aðeins vinir hans vita af því ef að foreldrar hans vissu af því
þá væri hann líklega ekki lengur hluti af fjölskyldunni. Hann er þó
í góðu sambandi við móður hans og heyrir í honum reglulega en hefur
aldrei sagt neinum í fjölskyldunni frá honum. Hér snýst allt um að
vera í hjónabandi! Allt annað er algjört tabú!!! Síðust en ekk síst
er það hún Niki. Niki er nýbyrjuð og enn svolítið feimin og óörugg.
Niki er 27 ára, býr ennþá með allri fjölskyldunn sem að hún sér
fyrir. Hún er hrein mey! Ég fékk að vita það fyrsta daginn sem ég
kom eftir að ég sagði henni að ég ætti barn og mann en væri ekki
gift! Held að hún sé ennþá að jafna sig á því greyið
Talandi um lífið á Indlandi og hjónabönd þá fengum við aðeins að
kynnast Inhaksi betur í fyrrakvöl þegar hún okkur margar sögur af
lífi sínu. Inhaksi ólst upp í sveit þar sem var til eitt sjónvarp í
öllu hverfinu og þótt það bara ríkidæmi! Þegar Inhaksi var komin á
giftingaraldurinn voru forelrar hennar búnir að velja sex unga og
efnilega drengi sem hún fékk að hitta. Hún var heppin því hún small
saman við einn þeirra og það var haldið brúðkaup. Hún lísti þessu
af mikilli innlifun því hún sagði að í ölllu uppeldinu er þetta það
sem búið að búa þig undir. Brúðkaupið sjálft!
Hún varð fljótlega ólétt öllum til mikillar gleði og svo þegar
litli prinsinn var um tveggja ára varð hún ólétt af öðru barni
þeirra. Þegar hún var komin 4 mánuði á leið kom maðurinn hennar til
hennar og sagði henni að hann væri ástfanginn af annari konu og að
hann væri farinn. Hann yfirgaf yfirgaf fjölskylduna sína fyrir nýju
konuna og hefur aldrei haft samband við syni sína síðan. Maður
myndi halda að Inhaksi hefði fengið alla samúðina í heiminum og
alla þá hjálp sem hún þyrfti frá fjölskyldunni en það var ekki
alveg svo. Það var hún sem var dæmd fyrir þetta en ekki hann. Þið
hlyti að vera eitthvað að henni. Fólk meira að segja hélt því fram
að það hlyti að vera að þessi börn væru bara ekki hans. Í nokkur ár
barðist hún í bökkum, var orðin hátt sett í vinnu, peningalega
sjálfsæð einstæð móðir. Það var þó ekki fyrr en hún giftist aftur
vel menntuðum og velstæðum manni að hún var tekin almennilega í
sátt aftur! Finnst ykkur þetta ekki sorglegt? Aumingja konurnar
hérna eru gjörsamlega háðar því að vera vel giftar!
Hér í Indlandi eru það ennþá bara frægustu kvikmyndastjörnurnar
og fyrisæturnar sem komast upp með að lifa þessu nútíma lífi og
eiga börn með fleirum en einum maka eða vera einstæðir foreldrar án
þess að vera útskúfuð úr þjóðfélaginu.
Jæja eins og þið sjáið þá hef ég ekkert betra en að babbla við
ykkur! Ég ætla að halda áfram að hvíla mig og ná heilsu..
Eigið góðan dag, heyrumst síðar!
Kolla
»
06.05.2006 19:47:27 / kollap
Halló öll sömul!
Það er búið að vera smá ástand á stelpunni núna. Það lítur allt
út fyrir að ég hafi fengið matareitrun þannig að ég er búin að vera
frekar tuskuleg síðustu daga. Það þýðir þó ekki að ég hafi getað
verið í rúminu eins og ég kannski hefði þurft! Ég vona að þetta
fari nú að ganga yfir!
Þetta er það sem ég er búin að aðhafast síðustu tvo daga:
Í gær föstudagsmorgun fórum við Gunna saman í myndatöku fyrir
tímarit sem heitir Verve. Þetta var beauty myndataka sem gekk mjög
vel fyrir sig þó svo að við hefðum ekkert verið svakalega sáttar
við förðunina! Það er ótrúlega sjaldgjæft að lenda á góðum
förunarfræðingum hérna. Ég er auðvitað búin að forvitnast helling
um bransann hérna og það eru nánast engir make up skólar hérna. Ef
þig langar að verða förðunarfræðingur þá þarft þú að vera nemi hjá
einhverjum í jafnvel nokkur ár eða fara erlendis og læra! Ástæðan
fyrir því að það vantar þessa skóla hérna er að yfivöld eru ekki
hrifin að faginu!!!! Svona er allt í Indlandi! Þeir ákveða hvað er
rétt og rangt og það stendur bara sama hvernig heimurinn
þróast!
Við fórum nú bara heim og lögðum okkur eftir vinnuna enda var
hitinn óbærilegur og heilsan ekki góð!
Um kvöldmatarleytið reyndum við nú að hressa okkur við og
ákváðum að kíkja aðeins á mannlífið. Við fórum á verslunargötu
hérna rétt hjá og grömsuðum í búðunum! Indverjarnir eru rosalega
yfirþyrmandi þegar það kemur að þjónustu! Hver búð sem við löbbuðum
inn í var bókstaflega á rúst þegar við löbbuðum út úr henni! Þeir
rifu allt sem þeir gátu úr hillunum og sýndu okkur alveg sama
hversu oft við sögðum nei eða að við hefðum ekki áhuga! Td, þá
löbbuðum við inn í nærfatabúð, það voru u.þ.b. 7 karlmenn að vinna
þar og ekki ein einasta kona og þið getið rétt ýmindað ykkur
hvernig ástandið í búðinni varð!
Á endanum fundum svo frábæra hluti eins og rúmteppi, púðaver og
auðvitað smá glingur og vorum því mjög ánægðar með leiðangurinn
þrátt fyrir allt áreitið!
Mér var farið að líða mjög illa þegar ég kom heim enda var ég
komin með bullandi hita þannig að það var lítið annað að gera en
hríslast upp í rúmi! Ég heyrði svo í Þresti, Mömmu, Pabba og Sigga
Viðari töffara! Það verður nú að viðurkennast að mér leið strax
aðeins betur þegar ég var búin að heyra í öllum! Svaf þokkalega
þegar ég loksins sofnaði og svaf til 11 í morgun.
Við erum bara búnar að taka því mjög rólega í dag, drösluðumst
aðeins í mollið núna seinnipartinn og reyndum að borða eitthvað!
Áttum svo heimboð til Inhaksi í kvöld og við ákváðum að þyggja það
og hún ákvað að elda mjög góðan og ekki sterkan mat fyrir okkur
aumingja íslendingana sem þolum ekki neitt! Áttum notalega stund
með fjölskyldunni yfir góðum mat og svo var stefnan tekin í þvílíka
V.I.P boðið! Við erum að tala um Bollywood kvikmyndapartý! Maðurinn
hennar Inhaksi vinnur fyrir Sony á Indlandi og hann kom okkur í
þetta partý. Þetta varhaldið á ótrúlega fallegum stað, allt í svona
frekar nýtískulegum inverskum stíl sem ég er algörlega heilluð af.
Þarna voru samankomnar nokkrar af stærstu kvikmyndastjörnum
indlands var okkur sagt. Það frábæra við þetta fólk var að sjá hvað
allir voru afslappaðir! Það láu allir á pullum og púðum á gólfinu
eins og Indverjar gera. Það skipti engu hvort það var verið að taka
viðtal við viðkomandi eða hvað, allir bara eitthvað svo rólegir á
því! Það var mjög gaman að fá tækifæri til að sjá þetta!
Jæja kæru vinir, núna ætla ég að fara að lúlla
mér
Hafið það sem allra best á morgun, mér skilst að það sé gott
veður á Íslandi núna. Njótið þess vel.
Góða skemmtun í Húsdýragarðinum á morgun elsku Siggi Viðar minn,
vertu góður við ömmu og afa! Og þið bræður, farið varlega í
fjöllunum!
Love Kolla
»
Síður: 1 2 3
|
Dagsetning
9. febrúar 2012
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
|